Fótbolti

Þátttöku Kolbeins lokið | Borinn af velli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kolbeinn skoraði mark Íslands í Noregi á dögunum.
Kolbeinn skoraði mark Íslands í Noregi á dögunum. Mynd/Vilhelm
Kolbeinn Sigþórsson, lykilmaður í íslenska landsliðinu, var borinn af velli undir lok fyrri hálfleiks í leiknum gegn Króatíu í kvöld.

Þetta eru afar slæm tíðindi fyrir íslenska landsliðið enda Kolbeinn markahæsti leikmaður liðsins með þrettán mörk í nítján leikjum. Hann leikur með Ajax í Hollandi og hefur margsinnis þurft að glíma við erfið meiðsli á ferlinum.

Atvikið átti sér stað undir lok fyrri hálfleiksins. Kolbeinn var kominn í álitlega stöðu rétt utan vítateigs Króatíu eftir góðan sprett upp hægri kantinn og laglegan samleik við Jóhann Berg.

Kolbeinn féll svo í jörðina án þess að vera snertur. Hann virtist hafa misstigið sig í grasinu á Laugardalsvellinum og var borinn út af, nokkuð þjáður.

Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, staðfesti við Rúv í hálfleik að Eiður Smári Guðjohnsen kæmi inn á í stað Kolbeins nú í upphafi seinni hálfleiks.

„Það er sorglegt að missa Kolla í svona mikilvægum leik en það er frábært að eiga mann eins og Eið Smára á bekknum í staðinn," sagði Heimir.

Kolbeinn hafði skoraði í fimm landsleikjum Íslands í röð þegar kom að leiknum í kvöld. Hann skoraði í æfingaleik gegn Færeyjum og svo gegn Sviss, Albaníu, Kýpur og Noregi í síðustu fjórum leikjum Íslands í undankeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×