Fótbolti

Klædd fánalitunum í tilefni Króatíkuleiksins

Kolbeinn Tumi Daðason í Leifsstöð skrifar
Helena og Júlíus taka sig vel út í fánalitunum.
Helena og Júlíus taka sig vel út í fánalitunum. Mynd/Vilhelm
Helena Óskar Ívarsdóttir og Júlíus Pálsson voru í banastuði í flugstöð Leifs Eiríkssonar með húfur og trefla í tilefni dagsins.

Helena og Júlíus eru tvö af fjölmörgum starfsmönnum í flugstöðinni með húfur og trefla í íslenskum fánalitunum í tilefni dagsins. Íslenska landsliðið flýgur utan til Zagreb klukkan 13.30 í dag ásamt fjölmörgum fjölmiðlamönnum og stuðningsmönnum íslenska landsliðsins.

„Við komumst ekki með til Zagreb þannig að við verðum að gera eitthvað skemmtilegt í staðinn. Klæðum okkur upp fyrir strákana,“ Halla Sverrisdóttir starfsmaður í flugstöðinni.

Halla var einnig klædd í glæsilega íslenska landsliðstreyju sem að kunningi hennar ætlaði að klæðast í Zagreb. Planið gekk ekki upp fyrir rest þannig að Halla nýtti tækifærið og skellti sér í bláu treyjuna.

En hefur Halla trú á því að strákarnir okkar komist til Brasilíu næsta sumar?

„Það væri ógeðslega gaman. Ef við vinnum leikinn þá vinnum við 2-1,“ segir Halla sem hefur mikla trú á strákunum.

Halla Sverrisdóttir hefur mikla trú á strákunum okkar.Mynd/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×