Lagerbäck sló á létta strengi aðspurður um byrjunarliðið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. nóvember 2013 14:30 Lars á blaðamannafundinum í dag. Mynd/Vilhelm
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck segjast vel á veg komnir með val sitt á byrjunarliðinu gegn Króötum annað kvöld. Svíinn sat fyrir svörum með blaðamönnum í Zagreb í dag og var hinn hressasti. Lagerbäck hefur nokkurn veginn treyst á sömu leikmenn í leikjunum í undankeppninni og fátt komið á óvart í liðsvali hans. Birkir Már Sævarsson hefur staðið vaktina í stöðu hægri bakvarðar í keppninni til þessa. Hann tók þó út leikbann í fyrri leiknum en Ólafur Ingi Skúlason, sem fyllti í skarðið, verður einmitt í því hlutskipti í síðari leiknum. Lagerbäck var spurður að því hvort Birkir Már myndi ekki augljóslega byrja annað kvöld. Svíinn brosti og kinkaði kolli. „Ég myndi segja að það væri mjög góð ágiskun. Við sjáum til á morgun,“ sagði Svíinn sposkur. Flestir reikna með því að Alfreð Finnbogason og Eiður Smári Guðjohsnen byrji saman í framlínu Íslands annað kvöld. Lagerbäck var spurður að því hvernig hann teldi að þeir myndu ná saman í framlínunni? „Ef þeir spila saman þá tel ég að það muni ganga vel. Þú sérð það á morgun. Ég skal svara þeirri spurningu betur eftir leikinn,“ sagði sá sænski og uppskar hlátur hjá blaðamönnum. Að fundinum loknum ræddi undirritaður við landsliðsþjálfarann sem útskýrði aðeins hvar liðsvalið væri statt. Fljótlega eftir leik, þegar ljóst var að Kolbeinn Sigþórsson væri meiddur og Ólafur Ingi Skúlason í leikbanni, lögðu þeir línurnar varðandi byrjunarliðið. „Heilt á litið vitum við hvað við ætlum að gera. Maður lýkur samt alltaf síðustu æfingunni og bíður til kvölds og sér til ef einhver meiðist eða finnur til þreytu. Við erum nokkuð vissir í okkar sök,“ sagði sá sænski í samtali við Vísi.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti „Hann er örugglega góður pabbi“ Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Fleiri fréttir Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Í beinni: Crystal Palace - Chelsea | Mæta með allt í upplausn í Lundúnaslag Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Sjá meira