Fótbolti

Gylfi: Erum aðeins níutíu mínútum frá Brasilíu

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson á æfingunni í dag ásamt Eiði Smára Guðjohnsen.
Gylfi Þór Sigurðsson á æfingunni í dag ásamt Eiði Smára Guðjohnsen. Mynd/Vilhelm
„Við erum vel stemmdir. Það er ekki oft sem Ísland hefur verið í tækifæri að komast á HM. Nú erum við aðeins níutíu mínútum frá því,“ segir landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi æfði ásamt félögum sínum á Maksimir-leikvanginum í dag og skartaði gulum Nike-skóm. Aðspurður hvort þeir væru hinir sömu og hann klæddist þegar hann skoraði glæsimörkin í Albaníu og Slóveníu fyrr í keppninni sagði Gylfi?

„Þetta eru allt saman Nike-skór. Þetta er alveg eins.“

Gylfi var afar yfirvegaður í spjalli sínu við blaðamenn og greinilegt að einbeitingin á verkefni morgundagsins er mikil.

„Það er mikill hugur í leikmönnum. Við höfum sérstaklega trú á þessu eftir seinni hálfleikinn þar sem við vorum manni færri í einhverjar fjörutíu mínútur.“

Gylfi segist vera í góðum gír þrátt fyrir að mikil orka hafi farið í leikinn á föstudagskvöldið.

„Persónulega líður mér mjög vel. Þegar þú nærð góðum úrslitum ertu sálfræðilega fljótari að jafna þig. Það var mjög mikilvægt að halda hreinu. Ég held að okkur líði öllum mjög vel,“ segir Gylfi. Hann segir liðið vissulega sakna Kolbeins Sigþórssonar en aðrir séu klárir og muni fylla í skarðið. Ekki sé ónýtt að eiga markahæsta leikmanninn í hollensku deildinni, Alfreð Finnbogason, inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×