Sorg í Portúgal rétt fyrir Svíaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2013 19:00 Cristiano Ronaldo. Mynd/NordicPhotos/Getty
Portúgal og Svíþjóð spila í Svíþjóð á morgun seinni umspilsleik sinn um laust sæti á HM í Brasilíu næsta sumar en Portúgalar hafa 1-0 forskot frá fyrri leiknum í Portúgal. Portúgalska þjóðin glímir við sorg tengdri fótbolta í aðdraganda leiksins því hinn tvítugi knattspyrnumaður Alex Marques lést í miðjum leik í gær eftir að hafa fengið hjartaáfall. Alex Marques var áður í herbúðum Porto en var þarna að spila með C-deildarliðinu Tourizense í deildarleik á móti Carapinhense. Leikurinn var aðeins sjö mínútna gamall þegar hann féll í grasið og lífgunartilraunir báru engan árangur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikmaður Tourizense fær hjartaáfall. „Allt portúgalska landsliðið vill senda fjölskyldu hans samúðarkveðju," sagði Fernando Gomes, forseti portúgalska knattspyrnusambandsins í viðtali við Sapo Desporto. Á heimasíðu sambandsins kemur líka fram að Cristiano Ronaldo og félagar í portúgalska hópnum séu í sjokki yfir þessum sorglegu fréttum frá heimalandinu. Svíar taka á móti Portúgal á Friends Arena í Stokkhólmi annað kvöld en ekki er enn ákveðið hvort portúgalska liðið muni minnast Alex Marques í tengslum við leikinn.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Depay ósáttur við að fá ekki framlengdan samning Slot hafnar hollenska landsliðinu „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Óvenjuleg leið á toppinn Monaco búið að gefast upp á Pogba Brann leggur inn kvörtun vegna rauða spjaldsins sem Kristall fékk Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Sjá meira