Fótbolti

Neymar spilar eins og hann sé í leikhúsi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar.
Neymar. Mynd/NordicPhotos/Getty
Neymar, leikmaður Barcelona og brasilíska landsliðsins fékk að kenna á því í vináttulandsleik Brasilíu og Hondúras um helgina eða svo segir Brassarnir. Leikmenn Hondúras eru ekki á sama máli.

„Neymar er leikmaður sem spilar allan tímann eins og hann sé í leikhúsi," sagði miðjumaðurinn Arnold Peralta við Sky Sports en Peralta spilar með Rangers í Skotlandi.

„Hann spilar fyrir aðdáendur sína en ekki fyrir liðsfélagana. Það er heldur ekki hægt að spila á móti honum því hann er klagandi í dómarann allan tímann. Dómarinn gefur honum líka allt," sagði Arnold Peralta ósáttur.

Neymar birti mynd á Instagram eftir leikinn þar sem sjá mátti ummerki á fæti hans eftir harðar móttökur leikmanna Hondúras.

Brasilía og Hondúras hafa bæði tryggt sér sæti á HM í Brasilíu, Brassarnir eru gestgjafar og Hondúras endaði í þriðja sæti í undankeppni Norður- og Mið-Ameríku.

Brasilíumenn unnu leikinn 5-0 þar sem fimm leikmenn liðsins voru á markalistanum;  Bernard, Dante, Maicon, Willian og Hulk.  Neymar skoraði ekki en lagði upp eitt markanna. Hann fór síðan af velli á 67. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×