Fótbolti

Gummi Ben og félagar mættir til Zagreb

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Gummi Ben var strax gripinn í viðtal hjá strákunum á Fótbolti.net.
Gummi Ben var strax gripinn í viðtal hjá strákunum á Fótbolti.net. Mynd/Vilhelm
Fjórar rútur með stuðningsmenn íslenska landsliðsins innanborðs renndu í hlað á Westin-hótelinu í Zagreb í dag eftir velheppnaða flugferð frá Íslandi.

Meðal farþega var Guðmundur Benediktsson sem mun lýsa leiknum mikilvæga í kvöld á Bylgjunni. Guðmundur er velþekktur fyrir innlifun og hnyttni í lýsingum sínum og ljóst að enginn verður svikinn af því að hlusta á hans orð á meðan á leik stendur í kvöld.

Í hópnum sem mætti til Zagreb í dag mátti meðal annars sjá Þóri Hákonarson, framkvæmdastjóra KSÍ, Sigurð Ragnar Eyjólfsson þjálfara karlaliðs ÍBV, Kristján Guðmundsson þjálfara Keflavíkur og Sverri Sverrisson fyrrum miðjumann Fylkis.

Íslendingarnir höfðu á orði að nú væru þeir tilbúnir að fá sér eitthvað í svanginn en áður en að því kom þurftu allir að skrá sig inn á hótelið. Það tók sinn tíma enda raðirnar langar eins og sést á myndinni hér að neðan.

Ein raðanna sem Íslendingarnir þurftu að dúsa í á meðan verið var að skrá alla inn.Mynd/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×