Fótbolti

Rigning í Zagreb

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Þessar heimakonur voru vopnaðar regnhlíf þegar Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, hitti á þær.
Þessar heimakonur voru vopnaðar regnhlíf þegar Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, hitti á þær. Mynd/Vilhelm
Skýin sem hafa sveimað yfir króatísku höfuðborginni léttu á sér um þrjú leytið í dag.

Rignt hefur undanfarna klukkustund og lítur út fyrir að ekkert lát verði á fram á kvöld. Grasið á Maksimir-leikvanginum fær því væna vökvun fyrir leikinn sem hefst klukkan 19.15.

Ljóst er að rignt getur á íslenska stuðningsmenn á Maksimir-leikvanginum í kvöld. Þar er nefnilega ekki að finna neitt þak yfir stúkunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×