Fótbolti

"Verðum alltaf sérstaklega gestrisnir í garð Íslendinga“

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Leikskráin og Maksimir-leikvangurinn í baksýn þegar tveir tímar voru í leik.
Leikskráin og Maksimir-leikvangurinn í baksýn þegar tveir tímar voru í leik. Mynd/KTD
Forseti króatíska knattspyrnusambandsins, Davor Suker, minnist 19. desember 1991 í pistli sínum í leikskrá fyrir landsleik Íslands og Króata í Zagreb í kvöld.

„Ég tel þrátt fyrir allt að nú muni Króatar binda endi á dapurt gengi sitt með nýjan þjálfara í brúnni. Við vitum hvaða gæði við höfum í Srna, Modric, Mandzukic, Rakitic og öðrum,“ segir Suker.

Suker varð markahæsti leikmaður HM 1998 þegar Króatar unnu bronsverðlaun eins og frægt er orðið.

„Ég hef enga trá á öðru en að leikmenn fylki sér á bak þjálfaranum og haldi til Brasilíu hafi liðið þessa örlitlu heppni með sér sem oft þarf í íþróttum.“

Suker segir samband Íslands og Króata sérstaklega gott.

„Við munum eftir því að Ísland var fyrsta þjóðin innan Sameinuðu þjóðanna sem viðurkenndi sjálfstæði Króata þann 19. desember 1991. Við munum alltaf vera sérstaklega gestrisnir þegar vinir okkar frá Íslandi eru annar vegar.“

Suker lýkur pistli sínum með að fullvissa stuðningsmenn að hlutverk þeirra sé mikilvægt í því verkefni að koma Króötum í fjórða skipti í lokakeppni HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×