Fótbolti

Heimir: Ætti ekki að vera vandamál að semja við Lagerbäck

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
„Ef það er hægt að lýsa andrúmsloftinu inni í klefa með einhverju orði þá væri það 'hljóðlátt',“ sagði aðstoðarþjálfarinn Heimir Hallgrímsson eftir 2-0 tapið í Króatíu.

Íslenska liðið var fjarri sínu besta í kvöld.

„Hvort sem það var vandamál í undirbúningnum eða andlega þættinum þá vorum við ekki eins og við höfum verið hingað til. Áttu slakan leik og það var klassamunur á þessum liðum í dag.“

Heimir sagði síðustu tvær til þrjár mínútur sem lifðu af fyrri hálfleik eftir rauða spjaldið hafa virst verið komið sjálfstraust í liðið.

„Við ætluðum að reyna að vinna okkur inn í leikinn, halda boltanum betur en fáum þetta kjaftshögg,“ sagði Heimir um mark Dario Srna í upphafi síðari hálfleiksins.

„Þeir voru ekkert síðri einum færri á móti okkur.“

Íslenska liðið virtist sakna Kolbeins Sigþórssonar sárt í kvöld.

„Við söknuðum margs í dag. Það voru margir sem áttu slakan dag í sendingum og hvernig við héldum boltanum illa. Það vantaði ansi mikið meira en Kolbein,“ sagði Heimir og bætti við:

 

„Við héldum boltanum illa og kannski þeir leikmenn sem hafa borið liðið uppi áttu off-leik í dag.“

Lars Lagerbäck hefur ekkert gefið uppi um framtíðina þótt hann sé jákvæður.

„Ég veit í rauninni ekkert. Það ætti samt ekki að vera vandamál. Ég vona bara að KSÍ beri gæfu til að semja við hann áfram. Ég held að það ætti ekki að vera vandamál ef ég tala bara út frá mínum tilfinningum.“

Viðtal Gumma Ben við Heimi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×