Fótbolti

Hannes Þór: Ég trúi þessu varla

„Við getum svo sem verið stoltir en fátt annað kemst að á þessu augnabliki en hrikaleg vonbrigði,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson.

Hannes átti fínan leik með íslenska liðinu í kvöld og varði oft á tíðum með tilþrifum.

„Ég eiginlega neita að trúa því af því ég var svo viss um að við værum að fara áfram. Mér finnst hrikalegt að þetta sé niðurstaðan. Ég trúi því varla.“

Hannes Þór var ekki viss hvort hann hefði getað gert betur í síðara marki Króata.

„Ég veit það ekki. Ég þarf að fá að sjá það aftur. Skotið var skrýtið, ég gerði mitt besta til að verja það. Ég veit ekki hvað skal segja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×