Fótbolti

Upphitunarþáttur fyrir leikina gegn Króötum | Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/vilhelm
Ísland mætir Króatíu þann 15. nóvember á Laugardalsvellinum í fyrri leik liðanna í umspilinu um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári. Liðin mætast aftur ytra þann 19. nóvember.

Íslenska landslið karla í knattspyrnu hefur aldrei spilað mikilvægari leik í sögunni og því allt undir eftir níu daga.

RÚV sýndi í gær upphitunarþátt fyrir leikinn sjálfan þar sem saga liðsins í umspilið er rakin og viðtöl við leikmenn og þjálfara íslenska landsliðsins en annar þáttur verður á dagskrá sjónvarpsins næstkomandi þriðjudag.

Hér má sjá þáttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×