Ragnar: Það eru ekki allir jafn barnalegir og ég Kolbeinn Tumi Daðason í Ósló skrifar 14. október 2013 12:07 „
Það er allt annað að vera í landsliðinu að spila og vera ekki að spila. Ég efast ekkert um að menn sem eru í hópnum núna og hafa fengið minna að spila séu pirraðir. “ Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er ánægður með varnarvinnu liðsins í undanförnum leikjum. „Einbeitingin er mjög fín. Maður er ekkert farinn að stressa sig á leiknum. Maður er slakur ennþá enda rúmur sólarhringur enn í leik.“ Greinilegt er að stemmningin í íslenska liðinu er afar góð eins og gjarnan vill verða þegar vel gengur. Það hefur þó ekki alltaf verið þannig og jafnvel komið fyrir að leikmenn gefi ekki kost á sér í landsliðið. Þannig var tilfellið með Ragnar um tíma þegar liðið lék undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. „Það er allt annað að vera í landsliðinu að spila og vera ekki að spila. Ég efast ekkert um að menn sem eru í hópnum núna og hafa fengið minna að spila séu pirraðir. Það eru bara ekki allir jafn barnalegir og ég og ákveða að gefa ekki kost á sér. Þetta voru tvö til þrjú ár sem ég spilaði einhverja þrjá til fjóra leiki og suma sem varamaður,“ segir miðvörðurinn sem spilað hefur afar vel í undanförnum leikjum. „Núna gengur hins vegar landsliðinu vel og sama þótt menn fái ekki níutíu mínútur í hvert einasta skipti þá held ég að menn vilji vera hluti af þessu. Þannig er þetta þegar vel gengur. Þá er allt miklu betra og skemmtilegra.“ Daniel Braaten, landsliðsmaður Noregs, er liðsfélagi Ragnars hjá FC Kaupmannahöfn. Þeir hafa þó ekki verið í neinu sambandi í aðdraganda leiksins. „Ég er ekki ennþá kominn með símanúmerið hjá honum. Við erum ekki orðnir það nánir ennþá. Þetta er samt mjög fínn gaur, mjög rólegur. Þetta er algjört dýr (e. beast) aftur á móti og með mjög góða tækni. Ég vona að hann byrji inn á á morgun og hlakka til að mæta honum.“ Varnarleikur Íslands í tveimur síðustu leikjum hefur vakið verðskuldaða athygli. Ragnar segir hana verða betri eftir því sem hún fái fleiri leiki saman. „Við náum ekki það mörgum leikjum enda eru þetta svo fáir landsleikir. Þetta er ekki bara varnarlínan. Þetta er líka spurning hvernig vinnu miðjumennirnir og framherjarnir vinna,“ segir miðvörðurinn. Íslenska liðið hefur aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu tveimur leikjum. „Ef þeir gera það vel eins og þeir hafa gert sérstaklega í síðustu tveimur leikjum þá er allt miklu auðveldara fyrir okkur í vörninni. Andstæðingarnir þurfa að sparka lélegum boltum fram sem við getum skallað til miðjumannanna. Það veltur svolítið mikið á því hvernig mennirnir fyrir framan okkur spila.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Fleiri fréttir Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn „Hann er sonur minn“ Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Hákon og félagar léku manni fleiri í klukkutíma en töpuðu samt Sancho tryggði Aston Villa áfram í Evrópudeildinni Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Fimm daga fangelsi fyrir að klæðast Borat skýlu á Meistaradeildarleik Sigurður Bjartur á leið til Spánar? „Lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin“ Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu