Innlent

Brúa þarf bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Sóley Tómasdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir benda á ólík dagvistunarúrræði fyrir yngstu börnin
Sóley Tómasdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir benda á ólík dagvistunarúrræði fyrir yngstu börnin Mynd/Vísir
Í kjölfar málsins sem kom upp á 101 leikskóla hefur umræðan um ábyrgð borgarinnar á dagvistunarúrræðum fyrir börn yngri en tveggja ára vaknað að nýju.

Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, vill að borgin beri ábyrgð á dagvistunarúrræðum þegar fæðingarorlofið lýkur.

„Borgaryfirvöld þurfa að axla ábyrgð gagnvart þessum yngsta aldurshópi. Við verðum að taka næstu skref í að innleiða hér leikskóla fyrir öll börn. Við verðum að brúa bilið á milli leikskóla og fæðingarorlofs,“ segir Sóley.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, er sammála um að nauðsynlegt sé að finna dagvistunarúrræði fyrir yngstu börnin en að það sé óraunhæft að borgin taki fulla ábyrgð á þjónustunni.

„Það er fín framtíðarsýn að byggja yfir öll börn frá því að fæðingarorlofi sleppir. En eins og staðan er núna þá höfum við ekki einu sinni efni á að gera við lek skólaþök. Því þurfum við að horfa til raunhæfari kosta eins og að fjölga sjálfstætt reknum ungbarnaleikskólum og fá dagforeldra til að vinna saman. Að auki mætti biðja atvinnulífið um aðstoð við lausn mála, til dæmis að bjóða dagforeldrum húsnæði til að vinna með börn starfsmanna fyrirtækisins,“ segir Þorbjörg Helga.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur síðustu daga unnið að því að finna dagvistunarúrræði fyrir börnin sem voru á leikskólanum 101. Átta börn eru enn í biðstöðu en þrjátíu börn hafa fengið örugg pláss.

Borgin rýmkaði fjárheimildir til annarra ungbarnaleikskóla í borginni þannig að hægt væri að taka við fleiri börnum. Einnig hafa starfsmenn á þjónustumiðstöðvum borgarinnar aðstoðað foreldra við að finna laus pláss hjá dagforeldrum í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×