Innlent

Rannsókn á barnaníði lýkur á næstu dögum

Í dag fer lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fram á að karlmaður á fertugsaldri, sem grunaður er um að hafa rænt stúlku á ellefta ári og brotið gegn kynferðislega, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Samkvæmt upplýsingum frá Björgvini Björgvinssyni, yfirmanni kynferðisbrotadeildar, verður farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir manninum. Maðurinn rændi stúlkunni um miðjan maí og hefur setið í varðhaldi síðan.

Björgvin segir að rannsóknin málsins sé á lokastigi og ætti að ljúka á næstu dögum. Þá sé einnig verið að skoða hvort að maðurinn hafi áður brotið af sér.

Sjá frétt Vísis frá 15. maí hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×