Innlent

Sögðust vera í lundaskoðunarferð og voru sýknaðir af þjófnaði

Jóhannes Stefánsson skrifar
Dómurinn féllst ekki á að mennirnir hefðu staðið að innbrotunum
Dómurinn féllst ekki á að mennirnir hefðu staðið að innbrotunum Mynd/

Tveir pólskir karlmenn, sem sögðust hafa komið til landsins til að skoða lunda í desember síðastliðnum voru þann 8. maí sl. sýknaðir af ákæru fyrir þjófnað af Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá var kröfu um upptöku á rúmlega 4000 evrum í fórum mannanna hafnað.

Mennirnir voru hins vegar sakfelldir fyrir hylmingu og hlutu 12 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm.

Mennirnir heita Tomas Strauka og Egidijus Valiusaitis og eru eftirlýstir af Interpol. Þeir voru ákærðir hér á landi fyrir þjófnað á skartgripum og ýmsum öðrum verðmætum að heildarvirði tuga milljóna úr 18 mismunandi innbrotum.

Vildu skoða lunda um hávetur og gáfu ótrúverðugar skýringar á háttsemi sinni

Mennirnir komu til landsins í desember síðastliðnum og gáfu þá skýringu fyrir dómara að þeir væru á landinu til þess að skoða og ljósmynda lunda. Þegar dómarinn benti þeim á að enga lunda væri að sjá um hávetur sögðust þeir hafa ætlað sér að sigla út á haf til að leita að þeim.

Í herbergi sem mennirnir voru með á leigu í Hlíðunum á meðan þeir dvöldust á landinu fannst mikið magn muna sem réttir eigendur gátu í mörgum tilfellum lýst fyrir lögreglu. Munirnir höfðu verið vandlega faldir inni í herbergi mannanna samkvæmt vitnisburðum lögreglumanna í málinu.

Þá fundust skóför annars mannsins á þrem mismunandi innbrotsvettvöngum. Maðurinn gaf þá skýringu að hann hefði fundið skóna, sem pössuðu við fótsporin á innbrotsvettvöngunum, og farið með þá heim í herbergi ákærðu.

Þá hafði einn húsráðandi komið heim og orðið var við tvo menn sem höfðu komið inn um svalahurð á heimili hans. Þeir höfðu á brott með sér myndavél á hlaupum er þeir urðu húsráðandans varir, en samskonar myndavél fannst í fórum ákærðu í málinu.

Af framburði mannanna mátti ráða að það hafi verið fyrir hreina tilviljun að skófar sem fannst á mismunandi innbrotsvettvöngum hafi tengst skóm sem fundust í herbergi mannanna, og það hafi einnig verið tilviljun að myndavél sem tveir menn sáust taka af einum innbrotsvettvanginum hafi endað í fórum ákærðu.

Héraðsdómur Reykjavíkur taldi ekki sannað að mennirnir hefðu framið innbrotin og féllst á skýringar mannanna að þeir hefðu keypt þýfið af öðrum pólskum manni.

Dómurinn ekki birtur á vefnum eins og reglur kveða á um

Athygli vekur að dómurinn var ekki birtur á netinu þegar hann féll, þrátt fyrir að reglur dómstólaráðs kveði á um að hann skuli birtur. Engin lagaskylda hvílir á héraðsdómi að birta dóma á netinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×