Lífið

Ógeðsskot Lindu Pé

Ellý Ármanns skrifar
"Já ekkert mál. Það gefur mér orku og gleði," segir Linda Pétursdóttir eigandi Baðhússins sem er stödd á Ítalíu þegar við spurðum hana hvort hún væri til í að segja okkur frá morgunmatnum sem hún myndaði og setti á Facebooksíðuna sína í morgun með skilaboðunum:

"Ást og orka fyrir kroppinn! Raw morgunmatur: "Ógeðsskot A La Solla", Chiagrautur og grænt te. Og þá er ég tilbúin í annasaman dag."

"Solla (Eiríksdóttir) kenndi mér þetta. Lucuma, maca, hampprótein, hveitigrasduft og blómafrjókorn. Hræra í vatni og skella í sig. Amen!" svarar Linda spurð hvað þetta græna ógeðsskot inniheldur.

"Og þetta í skálinni er Chiagrautur," segir Linda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.