Missti 100 kg Ellý Ármanns skrifar 7. mars 2013 16:15
Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson, 30 ára, sjómaður hefur lést um 100 kg. Lífið fékk að heyra sögu Fannars sem er mögnuð vægast sagt.Tók sig á til að friða mömmu sínaHvað varð til þess að þú breyttir um lífsstíl og hvað gerðir þú? "Í upphafi áður en ég fór á Reykjalund þá fannst mér ég ekkert vera of feitur þrátt fyrir að vera um 180 kg. Mamma var búin að nagast í mér í nokkur ár að gera eitthvað í mínum málum sem ég gerði annað slagið en kannski aðallega til að friða hana," svarar Fannar og heldur áfram:Mynd/Einkasafn Fannars og Jónas HallgrímssonHöfuðverkur að halda þyngdinni niðri "Ég átti ekki í teljandi vandræðum með að léttast en að halda þyngdinni niðri var annar höfuðverkur. Ég missti kanski ex mörg kíló og var orðinn sáttur en svo nokkrum mánuðum seinna var ég orðinn þyngri en ég var áður en ég tók mig á."Áttaði sig á vandamálinu "Það var svo þegar mamma benti mér á að fyrrverandi skipstjóri minn, Grétar Mar Jónsson, hafði farið í magahjáveituaðgerð og bað mig um að tala við hann sem ég gerði og hann ráðlagði mér að fá tíma hjá Birni Geir Leifssyni skurðlækni. Hann kom mér á biðlista á Reykjalundi þar sem það var svo mjög stuttur biðtími því ég fór á forgangslista ´því ég var ekki kominn með neina fylgikvilla offitu eins og of háan blóðþrýsting, áunna sykursýki eða kæfisvefn. Inn á Reykjalundi áttaði ég mig á því að ég ætti við vandamál að stríða eftir að hafa hlustað á annað fólk í mínum sporum en þá sá ég hvað ég hafði það slæmt."Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.Mynd/Jónas Hallgrímsson.Hélt þyngdinni niðri með fjölbreyttum æfingum "Í fjögur ár eða til ársins 2011 var ég í allskonar æfingum eins og bootcamp, fitnessbox, lyftingum, stífum útihlaupum og fótbolta. Snemma vors 2012 ákvað ég að einblína á lyftingarnar."Ákvað að keppa í fitness "Á þessum fjórum árum hafði ég haldið þyngdinni í þetta 95-100 kg og var bara mjög ánægðu með það. Þá fékk ég þá flugu í höfuðið að æfa eins og ég væri að fara að keppa í fitness, fá sixpack fyrir sumarið. Æfingarnar gengu svo vel að á endanum ákvað ég að keppa í WBFF í júní 2012. Fyrir það mót hjálpaði meistari Freyja Sigurðardóttir mér mjög mikið. Þegar ég síðan steig á svið var ég 83 kg, tæplega 100 kg léttari en það þyngsta sem ég hef vigtað mig."Komst á samning "Eftir mótið komst ég á samning hjá Nutramino heilsuvörum en það munar öllu að hafa frábæran styrktaraðila á bak við sig. Ég keppti svo aftur í nóvember síðastliðinn og var þá 92 kg og í miklu betra formi en ég var á fyrra mótinu og aftur kom Freyja að þjálfuninni sem og Sævar Borgarsson sem er einn mesti snillingur sem ég veit um. Hann sér um öll mín æfinga- og matarprógröm í dag."Þegar gamlar myndir af Fannari eru skoðaðar er eins og um annan mann sé að ræða.Stórkostlegur munur - gat ekki klætt sig í sokka "Ég er í dag um 100 kg. Ég er ekki í keppnisformi en samt í góðu formi og munurinn á að vera í góðu formi og svo að vera að kljást við offitu er stórkostlegur. Ég veit ekki almennilega hvernig ég get lýst því. Þegar ég var feitur þá átti ég í miklum erfiðleikum með að klæða mig í sokka á morgnana og það var hvergi hægt að finna föt sem pössuðu. Ég varð móður við að labba upp tröppurnar heima hjá mér. Sætið í gamla bílnum mínum var svo mölbrotið að það var búið að sjóða það allt saman og bæta við styrktarbitum. Svo þurfti ég að hætta á sjó vegna bakverkja sem voru áunnir."Sér fram á gott líf "Í dag er ég aftur byrjaður á sjó. Ég get klætt mig í sokka, get hreyft mig og gert flest allt sem aðrir geta. Ég sé fram á að vera lifandi þegar sonur minn vex úr grasi og leikið við hann en hann er að verða þriggja ára í maí." "Munurinn er já stórkostlegur og erfitt að færa hann í orð en til að einfalda það þá líður mér 100 kílóum betur."
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira