Lífið

Gefur iPhone úr blöðrum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Það tók Daníel nokkrar tilraunir að gera blöðru-iPhone-inn almennilega.
Það tók Daníel nokkrar tilraunir að gera blöðru-iPhone-inn almennilega.
Blöðrulistamaðurinn Daníel Birgir Hauksson gengur undir nafninu „Blaðrarinn" á Facebook, þar sem blöðrulistaverk hans eru til sýnis. Hann er einn þeirra fjölmörgu sem hyggjast gefa iPhone, nema þessi tiltekni iPhone er búinn til úr blöðrum.

„Viðbrögðin hafa verið góð. Maður sér auðvitað fólk gefa venjulegan iPhone út um allt á Facebook, og mér fannst fyndið að gefa þá frekar blöðru-iPhone," segir Daníel, en hans aðalstarf er að vera sirkuslistamaður. „Það þurfti samt alveg nokkrar tilraunir til að gera hann almennilega."

Daníel, sem er 22 ára, hefur leikið listir sínar með blöðrur undanfarin þrjú ár og segist ekki alveg viss hvernig áhuginn kviknaði. „Ég keypti bara einn svona blöðrupoka og ákvað að prófa," segir Daníel, en ískrið í blöðrunum fer ekkert í taugarnar á honum. „Nei það er bara eins og með ískur í krítartöflu. Það er ekki böggandi nema einhver annar sé að gera það."

Mikið er að gera hjá Daníel í blöðrunum og að hans sögn eru það aðallega barnaafmæli sem hann er fenginn til að skemmta í. „Ég var samt fenginn í fimmtugsafmæli um daginn. Það var mjög áhugavert. Síðan hef ég verið fenginn í ýmis fyrirtæki."

Á síðu Daníels má sjá sýnishorn af blöðrulistaverkunum.
Blöðrukjólar

Eitt af því athyglisverðasta sem Daníel sýnir á vefsíðu sinni er kjóll sem búinn er alfarið til úr blöðrum. „Já ég fékk allt í einu einhvern gífurlegan áhuga á að gera kjóla úr blöðrum," segir Daníel, en það tekur hann á bilinu tvo til fimm klukkutíma að gera einn blöðrukjól.

En hvað er það furðulegasta sem Daníel hefur gert úr blöðrum?

„Fólk reynir iðulega að stinga upp á einhverju erfiðu. Mér fannst til dæmis áhugavert þegar einhver bað mig um að gera pí-merkið (π). En ég reyni oftast að gera það sem fólk biður um, jafnvel þó það sé undarlegt."

Hér má sjá brot af blöðrulistaverkum Daníels.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.