Lífið

Fallegasta konan í sjónvarpi

Sjónvarpsstjarnan Elisha Cuthbert er íðilfögur á forsíðu marsheftis Maxim sem kemur í verslanir vestan hafs þann 19. febrúar. Tímaritið veitir Elishu nafnbótina "Fallegasta konan í sjónvarpi".

Elisha, sem er stjarna þáttanna Happy Endings, trúir því ekki að hún hafi fengið þennan titil.

Bomba.
"Að hugsa til þess að ein kona geti verið fallegust þegar Kaley Cuoco, Sofia Vergara og Zooey Deschanel eru á skjánum. Þær eru allar stórglæsilegar. Ég ætla ekki að rífast við neinn um þetta samt. Ég tek við þessum titli með reisn," segir Elisha í viðtali við tímaritið.

Með unnustanum.
Elisha er greinilega ekki bara fögur heldur líka hógvær en hún trúlofaðist kanadíska hokkíleikmanninum Dion Phaneuf í september á síðasta ári.

Forsíðan.
Smart á tónleikum.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.