Lífið

Djörf og kynþokkafull

Söngkonan Beyonce geislaði í orðsins fyllstu merkingu á frumsýningu myndar sinnar Life Is But A Dream í Ziegfeld Theater í New York á þriðjudagskvöldið.

Þessi glæsilegi kvenmaður klæddist kjól úr smiðju Elie Saab Couture sem var djarfur, kynþokkafullur og einstaklega smekklegur. Hún stígur varla feilspor þessi kona.

Þetta er kjóll í lagi.
Beyonce deildi rauða dreglinum með spjallþáttadrottningunni Opruh Winfrey en Oprah mun taka viðtal við söngkonuna í þættinum Oprah's Next Chapter innan tíðar.

Með Opruh.
Í Life Is But A Dream fjallar Beyonce um feril sinn í sviðsljósinu sem og einkalífið en hún eignaðist dótturina Blue Ivy með sínum heittelskaða, Jay-Z á síðasta ári.

Glæsileg.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.