"Þetta er stórfrétt í fitnessheiminum á Íslandi" Ellý Ármanns skrifar 14. febrúar 2013 17:30
Muscletech bætiefnafyrirtækið og verslunin Fitness Sport gerði tveggja ára auglýsingasamning við Magnús Samúelsson vaxtarræktarkappa en um er að ræða einn sá stærsta samning sinnar tegundar sem gerður hefur verið við vaxtarræktarmann í Evrópu. Við spurðum eiganda Fitness Sport, Svavar Jóhannsson, um styrkinn og ræddum að sama skapi við vaxtarræktarkappann sem er kallaður Maggi Sam.Síðast fékk Jón Páll Sigmarsson álíka stóran styrk "Já þetta er stórfrétt í fitnessheiminum á Íslandi þar sem þetta hefur ekki gerst í tæp 30 ár að bandarískt bætiefnafyrirtæki semji við íslenskan vaxtarræktarmann. Síðast þegar það gerðist þá var það árið 1984 að Weider fyrirtækið samdi við Jón Pál Sigmarsson heitinn," segir Svavar Jóhannson eigandi Fitness Sport sem er umboðsaðili Muscletech á Íslandi.Gríðarleg viðurkenning "Þetta er tvímælaust gríðarleg viðurkenning fyrir fitness bransann á Íslandi að stórfyrirtæki eins og Muscletech sem er langstærsta bætiefnafyrirtæki í heiminum skuli vilja fá Magnús til liðs við sig enda eru engin smá nöfn sem eru á samnningi hjá þeim eins og Phil Heath sem er Mr.Olympia og Branch Warren sem hefur unnið Arnold Classic mótið þrisvar sinnum. Þeir hljóta að sjá mikil framtíðar tækifæri í Magga en hann er margfaldur Íslandsmeistari og hefur unnið fjölmörg mót erlendis." "Magnús er einmitt að undirbúa sig fyrir þrjú erlend mót seinna á þessu ári. Við stefnum að því að hjálpa honum að ná hæstu hæðum og hver veit nema við sjáum hann á sviðinu hjá Arnold Swarzenegger á næsta ári," segir Svavar.Draumur að rætast "Þetta er náttúrlega draumur að rætast," segir Magnús Samúelsson spurður um auglýsingasamninginn. "Þetta er eitthvað sem maður er búinn að stefna að síðan maður byrjaði að lyfta lóðum og ekki skemmir fyrir að þetta er Musletech sem vill fá mig og bara hrikalegur heiður að fá að vera í sama liði og þessir stóru karlar eins og Phil og Branch. Þetta er líka staðfesting á að ég sé á réttri leið í sportinu og vonandi næ ég að standa undir væntingunum í framtíðinni og bæta mig meira og vonandi vinna nokkur mót í viðbót."Gerir þessi auglýsingasamningur þig ríkan? "Ég má ekki tjá mig um hvað ég er að fá en ég er mjög sáttur og þetta hjálpar mér gríðarlega við að halda áfram í vaxtarræktinni og verða betri," svarar Magnús.Maggi Sam og Ægir Jones Hafsteinsson við undirritun samningsins.Magnús Samúelsson.Phil Heath.Branch Warren í öllu sínu veldi á Arnolds í fyrra.
Mest lesið Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Lífið Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Lífið Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll Tónlist Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Lífið Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Lífið Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Menning Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Tónlist „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Tónlist Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Lífið Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Lífið Fleiri fréttir Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Oddvitaáskorunin: Ætlaði sér að verða næsti Beckham Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Oddvitaáskorunin: Dreymdi um að verða veðurfræðingur Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Oddvitaáskorunin: Ennþá svekkt með úrslit Eurovision 2010 Búið spil fimm mánuðum eftir fæðingu dótturinnar Oddvitaáskorunin: Liverpool ekki vinsælasta liðið innan flokksins Oddvitaáskorunin: „Alveg óþolandi hvað ég kann illa á klukku“ Oddvitaáskorunin: Hljóp í spreng Sveinn Andri og Vigdís keyptu ótrúlega íbúð á besta stað Oddvitaáskorunin: Grét yfir bókinni í misheppnaðri útilegu Oddvitaáskorunin: Ætlaði til Akureyrar en sneri óvart við í Borgarnesi Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Oddvitaáskorunin: Ron Burgundy sá fyndnasti Oddvitaáskorunin: „Jólasveinn í Jólafsfirði“ Oddvitaáskorunin: „Baunateljarinn“ Framboð án eftirspurnar: Óvinsælustu örframboðin í sögu borgarinnar Oddvitaáskorunin: Streymdi hrotunum beint á Facebook Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Oddvitaáskorunin: Vopnið á Skaganum Oddvitaáskorunin: „Sveitastjórinn“ myndi elta ræturnar Oddvitaáskorunin: Sprittaði Herjólf í Covid Oddvitaáskorunin: Eflaust trúaðri en samflokksmennirnir Sjá meira