Lífið

Partíprinsinn er mættur aftur

Harry prins fagnaði heimkomu sinni til London með því að djamma ærlega um helgina. Harry, sem er búinn að vera með hernum í Afganistan síðustu fjóra mánuði, fór út á lífið með frænku sinni, Beatrice prinsessu.

Þau sáust saman á veitingastaðnum og klúbbnum Bodos Schloss sem er í eigu vinar Harrys. Prinsinn var afar örlátur og bauð öllum á barnum upp á skot.

Harry hatar ekki djammið.
"Harry skemmti sér með vinum sínum. Hann daðraði við sætar stelpur, þar á meðal Ashley Roberts í Pussycat Dolls," segir gestur staðarins.

Ashley er svaka skvísa.
Harry ákvað svo að koma sér heim eins og venjulegur Lundúnabúi og tók leigubíl í staðinn fyrir að nýta sér einkabílstjórann sinn.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.