Innlent

Borgarleikhúsið rýmt vegna reyks

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu fór í Borgarleikhúsið í kvöld eftir að tilkynnt var um reyk og brunalykt á stóra sviðinu. Að sögn varðstjóra var æfing í gangi í leikhúsinu og var það rýmt á meðan slökkviliðsmenn athöfnuðu sig.

Í ljós kom að mótor í einhverju tæki gaf sig þegar verið var að snúa sviðinu. Ekki voru neinir sénsar teknir og gripið til allra varúðarráðstafana.

Engin hætta var á ferðum og hélt æfingin áfram eftir að slökkviliðsmenn voru búnir að ganga úr skugga um að allt væri í góðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×