Segir ekki tímabært að ræða framhald ESB viðræðnanna 13. september 2013 07:00 Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, gagnrýndi Gunnar Braga harðlega fyrir að hafa leyst upp samninganefnd og viðræðuhópa Íslands vegna viðræðnanna.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir ekki tímabært að ræða framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið fyrr en skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu viðræðnanna og þróun sambandsins hafi verið lögð fram. En í umræðum á Alþingi í gær greindi hann frá því að hann hefði óskað eftir því að stofnunin gerði slíka skýrslu. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, gagnrýndi Gunnar Braga harðlega fyrir að hafa leyst upp samninganefnd og viðræðuhópa Íslands vegna viðræðnanna og sagði hann þar með fara á svig við vilja Alþingis og fyrsta skrefið væri stigið til að slíta viðræðunum. Utanríkisráðherra sagði ríkisstjórnina vera með jákvæða og metnaðarfulla sýn í Evrópumálum, með öflugu samstarfi við Evrópusambandið. Samskiptin við sambandið stæðu á traustum fótum og bæri EES-samstarfið þar hæst. „Ég vil að við stundum sterka og sýnilega hagsmunagæslu innan EES og annarra samninga sem við höfum gert við Evrópusambandið,“ sagði utanríkisráðherra. Sem kallaði á mannafla og viðveru í Brussel. Tillögur í þessa veru væru á hans teikniborði og hann legði áherslu á tvíhliða samninga við sambandið. Gunnar Bragi segir að ákvörðun um umsókn að ESB hafi verið tekin án þeirrar sannfæringar og samstöðu sem hefði þurft að vera til staðar. Fólk geti treyst því að viðræðurnar verði ekki teknar upp aftur fyrr en að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Össur Skarphéðinsson segir ráðherra hafa slegið Íslandsmet í ræðu sinni á Alþingi í gær. „Því honum tókst í einni ræðu bæði að fara gegn eigin yfirlýsingum, storka fullveldi Alþingis og líka fara gegn stefnu ríkisstjórnarinnar,“ sagði Össur. En formenn stjórnarflokkanna hefðu báðir lýst því yfir að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna færi fram á þessu kjörtímabili. Almenningur byggist því réttilega við að staðið yrði við þau fyrirheit. Skiptar skoðanir eru um Evrópumálin innan Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður flokksins, viðurkennir að hann sé í minnihluta innan flokksins. Hann telji rétt að Alþingi hefði átt að taka þá ákvörðun að gera hlé á aðildarviðræðunum þar sem ríkisstjórnin sæti í skjóli þingsins og hefði ekki sjálfstætt vald. Alþingi hefði ákveðið árið 2009 að farið yrði í viðræðurnar og Ísland hefði t.d. gerst aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Alþjóðabankanum, EFTA, NATO og fleiri stofnunum með þingsályktunartillögum. Til að vera sjálfstæð þjóð þurfi stundum að taka ákvörðun um fullveldisafsal til að vera með öðrum þjóðum. „Það er engin uppgjöf. Fullkomið sjálfstæði í samskiptum við aðrar þjóðir er ekki til lengur,“ sagði Vilhjálmur.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira