Lífið

Leikkona á von á fjórða barni

Leikkonan Maya Rudolph á von á sínu fjórða barni með eiginmanni sínum, handritshöfundinum og leikstjóranum Paul Thomas Anderson.

Maya, sem er fertug, og Paul, sem er 42ja ára, eiga börnin Pearl, sjö ára, Lucille, þriggja ára og Jack, nítján mánaða saman.

Maya geislaði á síðustu meðgöngu.
Síðan Maya eignaðist sitt fyrsta barn árið 2005 hefur hún fókuserað á fjölskylduna.

"Áður en ég átti börn átti sjónvarpsþátturinn Saturday Night Live hug minn og hjarta. Það er erfitt að vera til staðar fyrir fólk þegar maður leikur í þættinum því hann er mjög krefjandi," sagði Maya í viðtali í apríl á síðasta ári. Hún hætti í Saturday Night Live árið 2007 en hefur átt mikilli velgengni að fagna í kvikmyndum á borð við Bridesmaids, Friends With Kids, Grown Ups, Away We Go og Idiocracy.

Hæfileikarík hjón.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.