Fótbolti

Lagerbäck sló á létta strengi aðspurður um byrjunarliðið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lars á blaðamannafundinum í dag.
Lars á blaðamannafundinum í dag. Mynd/Vilhelm
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck segjast vel á veg komnir með val sitt á byrjunarliðinu gegn Króötum annað kvöld.

Svíinn sat fyrir svörum með blaðamönnum í Zagreb í dag og var hinn hressasti. Lagerbäck hefur nokkurn veginn treyst á sömu leikmenn í leikjunum í undankeppninni og fátt komið á óvart í liðsvali hans.

Birkir Már Sævarsson hefur staðið vaktina í stöðu hægri bakvarðar í keppninni til þessa. Hann tók þó út leikbann í fyrri leiknum en Ólafur Ingi Skúlason, sem fyllti í skarðið, verður einmitt í því hlutskipti í síðari leiknum.

Lagerbäck var spurður að því hvort Birkir Már myndi ekki augljóslega byrja annað kvöld. Svíinn brosti og kinkaði kolli.

„Ég myndi segja að það væri mjög góð ágiskun. Við sjáum til á morgun,“ sagði Svíinn sposkur.

Flestir reikna með því að Alfreð Finnbogason og Eiður Smári Guðjohsnen byrji saman í framlínu Íslands annað kvöld. Lagerbäck var spurður að því hvernig hann teldi að þeir myndu ná saman í framlínunni?

„Ef þeir spila saman þá tel ég að það muni ganga vel. Þú sérð það á morgun. Ég skal svara þeirri spurningu betur eftir leikinn,“ sagði sá sænski og uppskar hlátur hjá blaðamönnum.

Að fundinum loknum ræddi undirritaður við landsliðsþjálfarann sem útskýrði aðeins hvar liðsvalið væri statt. Fljótlega eftir leik, þegar ljóst var að Kolbeinn Sigþórsson væri meiddur og Ólafur Ingi Skúlason í leikbanni, lögðu þeir línurnar varðandi byrjunarliðið.

„Heilt á litið vitum við hvað við ætlum að gera. Maður lýkur samt alltaf síðustu æfingunni og bíður til kvölds og sér til ef einhver meiðist eða finnur til þreytu. Við erum nokkuð vissir í okkar sök,“ sagði sá sænski í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×