Neyðarástand í sjö ríkjum vegn Sandy, þjóðvarðliðið kallað út 29. október 2012 11:15
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í sjö ríkjum á austurströnd Bandaríkjanna og búið er að kalla úr hersveitir í þjóðvarðliðinu. Reiknað er með að Sandy nái landi í New Jersey síðdegis í dag. Gífurlegur viðbúnaður er á austurströnd Bandaríkjanna vegna komu fellibylsins Sandy. Hundruð þúsunda manna hafa flúið frá þeim strandsvæðum sem talið er að fellibylurinn fari yfir. Talið er að allt að 60 milljónir manna geti orðið fyrir barðinu á Sandy vegna flóða, rafmagnsleysis og skemmda á híbýlum. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í New York ríki, New Jersey, Pennsylvaníu, Connecticut, Maryland og Virginíu og að hluta til í Norður Karólínu. Í þessum ríkjum hafa hersveitir úr þjóðvarðliðinu verið kallaðar út og eru þær í viðbragðsstöðu. Í New York borg munu allar opinberar samgöngur, þar á meðal neðanjarðarlestakerfið, liggja niðri í dag, flugvellir verða lokaðir og stjórn kauphallarinnar hefur tilkynnt að markaðurinn í New York verði lokaður í dag og sennilega einnig á morgun. Þá hefur Barack Obama Bandaríkjaforseti hvatt íbúa á austurströndinni að taka fellibylinn alvarlega og að fara eftir þeim ráðum og leiðbeiningum sem yfirvöld hafa gefið út. Talið er að þegar Sandy nær til New York geti ölduhæðin við Manhattan orðið allt að 11 metrar. Þetta skýrist af því að Sandy mun sameinast öflugum kuldaskilum áður en fellibylurinn nær landi og mynda svokallaðan ofurstorm. Sandy er enn fyrsta stigs fellibylur en vindhraðinn í honum hefur verið að aukast og mælist nú yfir 40 metrar á sekúndu. Reiknað er með að vindstyrkur Sandy aukist þegar fellibylurinn nær landi.
Mest lesið Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Erlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Fleiri fréttir Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Sjá meira