Veiðitímabil svartfugls stytt 13. apríl 2012 16:41
Umhverfisráðherra hefur breytt reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum á þann veg að stytta veiðitíma fimm tegunda svartfugla nú í vor. Veiðar á álku, langvíu, lunda, stuttnefju og teistu verða heimilar til 25. apríl í stað 10. maí nú í vor. Með styttingu veiðitímans nú er vonast til að dragi úr afföllum og álagi á stofna svartfugla á þeim tíma sem þeir nálgast land og fara að setjast upp í varpstöðvum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Vegna hruns svartfuglastofna við Ísland óskaði umhverfisráðherra eftir tillögum starfshóps um viðbrögð við ástandinu. Meirihluti hópsins lagði til að sett yrði fimm ára bann við veiðum á fimm tegundum svartfugla vegna fækkunar í stofnum þeirra og viðkomubrests á stórum hluta landsins. Minnihlutinn vildi ganga skemur varðandi aðgerðir til að draga úr veiðiálagi á svartfugla og hyggst ráðherra afla frekari ráðgjafar áður en ákvörðun er tekin um mögulegar frekari aðgerðir. Í skýrslunni koma auk þess fram tillögur m.a. um styttingu veiðitíma að hausti, stækkun verndarsvæða við fuglabjörg og bætta skráningu á sjódrukknuðum fuglum í netum. Ákveðið hefur verið að bæta vöktun allra svartfuglastofna á komandi árum og hefur umhverfisráðuneytið nú nýlega fengið tillögur Náttúrufræðistofnunar Íslands þar að lútandi. Ráðherra hefur að öðru leyti ekki tekið afstöðu til tillagna starfshópsins, en mun gera það tímanlega áður en veiðitímabil á að hefjast að nýju 1. september í haust. Starfshópurinn lagði loks til að ákvæðum um hlunnindaveiðar utan hefðbundins veiðitíma yrði breytt til að auka heimildir ráðherra til reglusetningar þar ef þörf krefði. Frumvarp þess efnis liggur nú fyrir Alþingi.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira