Innlent

Talið að einhver hafi skotið í gegnum rúðu á gröfu

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Mölbrotnar rúður blöstu við verktaka þegar hann kom að gröfunni sinni í Breiðholtinu í morgun. Talið er að einhverskonar skotvopn hafi verið notað og er verktakanum brugðið.

Lögregla var kölluð að Völvufelli í Breiðholti í morgun eftir að í ljós kom að rúður höfðu verið brotnar í gröfu. Þegar farið var að skoða gröfuna kom í ljós einhverskonar skotvopn hafði verið notað.

Snorri Magnússon jarðvinnuverktaki hjá Steinbergi sem á gröfuna var beðinn um að koma á svæðið. Hann segir enga kúlu hafa fundist og ekki sé vitað hvernig vopn hafi verið notað. Hugsanlega hafi það verið loftriffill. Hann hafi áður lent í því að rúður hafi verið brotnar á gröfunni. Það hafi þá verið börn en aldrei með þeim hætti sem nú var gert.

Grafan stóð við heimahús þar sem verið var að vinna. Nágranni sá brotnu rúðurnar og hafði samband við lögregluna. Ekki er vitað hvenær skotið var á rúðurnar en enginn virðist hafa orðið var við neitt. Snorri segir sér nokkuð brugðið og að tjónið sé nokkurt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×