Innlent

Stór jarðskjálfti norðaustur af Gjögurtá

Jarðskjálfti upp á 4,5 stig varð 25 kílómetra norðaustur af Gjögurtá, við austanvert mynni Eyjafjarðar um klukkan hálf sex í morgun eftir að tveir skjálftar upp á tæp þrjú stig, höfðu mælst þar skömmu áður.

Síðan hafa mælst eftirskjálftar þar, en þetta er nokkuð austar en skjálftasvæðið þar sem hrina hófst aðfararnótt sunnudags og stendur enn. Þar mældist skjálfti upp á 3,5 stig á tíunda tímanum í gærkvöldi, en upp úr því fór að verða vart við virkni austar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×