Innlent

Bráðsmitandi veiruskita í kúm á Suðurlandi

Veiruskita í kúm geysar nú á Suðurlandi, enda bráðsmitandi, samkvæmt vef Matvælastofnunar.

Sjúkdómurinn, sem geysar af og til, er ekki hættulegur fólki og hefur ekki áhrif á neysluhæfni afurða.

Stofnunin hvetur bændur til að huga vel að smitvörnum og draga úr umferð utanaðkomandi fólks um búin og flutningi gripa og tækja á milli búa.

Veikin getur haft skaðleg og varanleg áhrif á heilsu þeirra kúa sem hafa fengið hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×