Innlent

Féll niður gil og margbrotnaði

Þyrla landhelgisgæslunnar sótti konuna. Myndin er úr safni.
Þyrla landhelgisgæslunnar sótti konuna. Myndin er úr safni.
Bresk kona um fimmtugt féll um fimm metra niður í grýtt gil í Þórsmörk um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli þá er konan margbrotin eftir fallið og mjög illa slösuð. Konan gekk eftir göngustíg ásamt hópi samlanda sinna þegar svo virðist sem henni hafi skrikað fótur með þeim afleiðingum að hún féll niður Hamragilið.

Sjúkrabíll sótti konuna og ók til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug með hana á Landspítalann í Fossvogi þar sem gert er að sárum konunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×