Innlent

Yfirkjörstjórn ekki vottað framboð Ástþórs Magnússonar án fyrirvara

Karen Kjartansdóttir skrifar
Lögregla rannsakar mögulegar falsanir á undirskriftarlistum hans. Formaður yfirkjörstjórnar segir ekki vísbendingar um falsanir hjá öðrum frambjóðendum. Ástþór segir einhvern reyna leggja steina í götu lýðræðisins.

Framboð Ástþórs er í uppnámi eins og sakir standa. Þar sem hann hefur ekki uppfyllt skilyrði laga um fyrirvaralausa vottun yfirkjörstjórnar á framboði sínu þar sem grunur er um að hluti undirskriftarlista hans sé falsaður.

„Þegar það komu ábendingar úr þjóðskrá að það gæti verið að nöfn meðmælanda væru skrifuð með sömu rithönd var haft samband við nokkra þeirra sem eru á þessum listum. Þá kom í ljós að þeir höfðu ekki mælt sjálfir með framboð Ástþórs Magnússonar. Þegar hér var komið við sögu þá treysti yfirkjörstjórn sér ekki til votta um kosningabærni meðmælenda í samræmi við lög um framboð og kjör forseta Íslands án fyrirvara. það var sem sagt gefin út vottun með fyrirvara um gildi þessara undirskrifta," segir Katrín Theodórsdóttir, formaður kjörstjórnar.

Málinu hefur því verið vísað til lögreglu sem rannsakar málið.

Á næstu dögum verður farið yfir gögn frambjóðenda í innanríkisráðuneytinu en Ástþór hefur gert athugasemdir við meðmælendalista mótframbjóðenda sinna. Hann sagði í samtali við fréttastofu í dag að svo virtist sem einhver væri að reyna leggja stein í götu lýðræðisins með því að gera lista yfir meðmælendur tortryggilega. Málið afhjúpi meiriháttar galla í kerfinu sem þurfi að laga.

Katrín segir þó að engar vísbendingar séu um að falsanir hafi verið meðal þeirra undirskrifta.

Tekið skal fram að Ástþór hefur skilað inn 200 viðbótarundirskriftum en engar vísbendingar voru um að falsanir væru þar á meðal og voru þær því vottaðar án athugasemda af kjörstjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×