Erlent

Létu hasssmyglara sjálfa sýna sér hvar hassið var falið

Lögreglan í Kaupmannahöfn beið róleg átekta í fyrrakvöld fyrir utan bílskúr á Amager og leyfði nokkrum stórtækum hasssmyglurum að sýna sér hvar þeir höfðu falið hassið sem þeir höfðu smyglað til borgarinnar frá Þýskalandi.

Hér var um menn úr lögreglusveitinni Task Force Pusherstreet að ræða. Þeir höfðu haft nokkra Dani undir eftirliti í um mánuð þar sem þeir voru grunaðir um að skipuleggja umfangsmikið fíkniefnasmygl til Kristjaníu í Kaupmannahöfn.

Eftirlitið bar árangur þegar lögreglumennirnir sáu að fjórir menn hittust á bílastæði við Fisketorvet. Þaðan fylgdust þeir svo að meðan þýskum sendiferðabíl var ekið í bílskúr á Amager skammt frá Kristjáníu en mennirnir fjórir fóru inn í skúrinn á eftir bílnum.

Lögreglumennirnir ákváðu að doka við í nokkurn tíma en réðist svo til inngöngu í bílskúrinn. Þar voru fjórmenningarnir um það bil að ljúka við að rífa upp gólfið í sendiferðabílnum. Undir gólfinu hafði tæplega 80 kílóum af hassi verið komið fyrir á haganlegan hátt.

Fjórmenningarnir, tveir Danir búsettir á Amager, Þjóðverji og Pólverji voru handteknir. Á heimilum Dananna fannst svo meira af hassi og kókaín auk 18.000 danskra kr. í seðlum. Bæði Þjóðverjinn og Pólverjinn voru með rúmlega 1.200 evrur á sér í seðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×