Hannes eyðir kosningadeginum í Skagafirði 30. júní 2012 14:36 Hannes Bjarnason. „
Þetta leggst ljómandi vel í mig," svarar Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi, sem eyðir kosningdeginum í Skagafirði ásamt fjölskyldu sinni í dag. Þar mun hann einnig kjósa og í kvöld mun hann halda kosningavöku í Miðgarði í Varmahlíð. Hannes er ættaður frá Skagafirði en hefur, eins og kunnugt er, verið búsettur í Noregi síðastliðin ár. Spurður hvað hann ætli að gera í dag svarar hann: „Ætli við tökum það ekki bara rólega og hugsum um börnin okkar. Þau hafa verið hjá ömmu sinni alla vikuna." Spurður hvort hann hafi velt úrslitum kosninganna eitthvað fyrir sér, svara Hannes að hann voni að hann hækki eitthvað, en fylgi hans hefur mælst um eitt prósent í síðustu könnunum. Hannes segist hafa fundið fyrir miklum meðbyr síðustu vikurnar, „og ég held hreinlega að mitt stuðningsfólk séu ekki þeir sem hrópa hæst, en það verður gaman að sjá hvernig þetta fer að lokum." Aðspurður hvort eitthvað hafi vakið athygli hans, eftir að hafa verið svo lengi í Noregi, enda gests augað glöggt, svarar Hannes að hann hafi hitt mikið af fólki á ferðum sínum um landið undanfarnar vikur. Og meðal annars eitt vakið athygli hans, „það eru allir að tala um uppgjör eftir hrun, þeir tala um gagnsæi í þjóðfélaginu, svo þegar á hólminn er komið er fólk ekkert sérstaklega upptekið af því að gera upp eftir hrun." Hannes segir þetta meðal annars kristallast í skörpum átakalínum, þá helst á milli Þóru Arnórsdóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar. Spurður hvort það geri Þóru sérstaklega pólitíska þó stuðningsmenn hennar séu það, svara Hannes: „Það er allt í lagi að það séu flokkadrættir. Hún hefði kannski bara átt að viðurkenna það, í staðinn fyrir að fara undan í flæmingi." Spurður hvað hann ætli að gera á morgun, það er að segja verði hann ekki kjörinn sem forseti, segir Hannes að við taki sumarfrí. Svo mun hann halda aftur til Noregs, þar sem börnin hans úr fyrra hjónabandi eru búsett.
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Fleiri fréttir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Sjá meira