Lífið

Býr til skart úr smáhlutum

Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skemmtilegt skart úr smáhlutum og selur á Facebook.
fréttablaðið/stefán F63140912
Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skemmtilegt skart úr smáhlutum og selur á Facebook. fréttablaðið/stefán F63140912
Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skemmtilegt og einstakt skart undir heitinu Salkasvan og selur á samskiptavefnum Facebook. Salka er aðeins fjórtán ára gömul en segist hafa saumað og skapað með ömmu sinni frá tveggja ára aldri.

"Ég hef alltaf haft gaman af því að sauma og föndra. Amma mín er saumakona og ég hef saumað með henni síðan ég var tveggja ára gömul. Ég heimsæki hana alltaf á sunnudögum og einn daginn fann ég pínulitlar dúkkur heima hjá henni og datt í hug að það gæti verið flott að búa til eyrnalokka úr þeim," útskýrir Salka sem segist föndra skart úr hvers kyns smáhlutum. Sjálf getur hún ekki notað eyrnalokka og því datt henni í hug að mynda lokkana og setja á Facebook ef vera skyldi að öðrum litist á þá.

"Ég get ekki notað eyrnalokka en hélt kannski að annað fólk gæti viljað þetta. Ég hef selt þrjú pör hingað til."

Salka er fjórtán ára gömul og í 9. bekk í grunnskóla. Hún er dóttir Svanhvítar Tryggvadóttur hárgreiðslukonu og stjúpdóttir Georgs Hólm tónlistarmanns. Aðspurð segist hún gjarnan vilja læra einhvers konar hönnun í framtíðinni. "Ég hef rosalega gaman af tísku og hönnun og myndi annað hvort vilja læra fata- eða skartgripahönnun, ég hef mest gaman af því." Innt eftir því hvort hún eigi sér önnur áhugamál en hönnun svarar hún játandi: "Ég hangi mest með vinum mínum en hef líka gaman af því að teikna."

Þeir sem hafa áhuga á að skoða skartið hennar Sölku er bent á síðuna Salkasvan á Facebook. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.