Alfreð: Ég get spilað með hvaða leikmanni sem er Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. september 2012 07:45 Alfreð í leik með hollenska liðinu Heerenveen.nordicphotos/getty
Alfreð Finnbogason vonast til að fá tækifæri í byrjunarliði Íslands gegn Noregi, sérstaklega þar sem Kolbeinn Sigþórsson er fjarverandi vegna meiðsla. Alfreð hefur gert það gott í sumar, fyrst með sænska liðinu Helsingborg og svo með Heerenveen í Hollandi þar sem hann er nú. „Ég er nú að byrja nýtt ævintýri í Hollandi. Það byrjar vel og ég er í flottum málum. Sjálfstraustið er gott eftir að hafa spilað vel og skorað mikið í Svíþjóð," sagði Alfreð sem skoraði bæði mörkin í 2-2 jafntefli Heerenveen gegn Ajax í hollensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Hann gerir vitanlega tilkall til sætis í byrjunarliðinu í kvöld. „Mér finnst ég hafa gert það sem þarf til. Ég hef staðið mig vel með mínu félagsliði og meira er ekki hægt að gera. Nú er það þjálfarans að taka ákvörðun," sagði Alfreð en hann hefur aldrei verið í byrjunarliði Íslands undir stjórn Lagerbäcks. Eins og sést í meðfylgjandi töflu hefur hann spilað í samtals 48 mínútur undir hans stjórn og skorað á þeim tíma eitt mark – gegn Svartfellingum. Lagerbäck vill helst spila 4-4-2 og er það kerfi sem Alfreð þekkir vel. „Ég spilaði í tveggja manna framlínu í Svíþjóð í allt sumar og núna er ég fremsti maður í 4-3-3. Mér er í raun alveg sama með hverjum ég spila og í hvaða kerfi. Ég vil helst vera í sókninni enda hefur það verið mín staða síðasta árið." Alfreð vonast auðvitað eftir sigri í kvöld og segir að nú sé tímbært að leggja Norðmenn. „Við höfum átt góða kafla í leikjum okkar í síðustu keppnum, sérstaklega gegn Noregi. Við unnum þá fáa leiki og er nú kominn tími til að hætta því kjaftæði. Við þurfum að ná í úrslit – um það snýst þetta allt saman."Mínútur á milli marka Fimm leikmenn hafa skorað í leikjum Íslands undir stjórn Lagerbäck: Alfreð Finnbogason (1 mark) 48,0 mín. Kolbeinn Sigþórsson (4) 48,3 Arnór Smárason (1) 99,0 Hallgrímur Jónasson (1) 270,0 Birkir Bjarnason (1) 335,0
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Íslenski boltinn Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Íslenski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf KA – Þór Ak. | Sex stiga fallbaráttuslagur nágrannanna Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Skorti yfirvegun og gæði á hólminum“ „Vinnusemi og liðsheild skilaði þessum sigri“ „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór Ak. | Sex stiga fallbaráttuslagur nágrannanna Sevilla - Barcelona | Börsungar í Andalúsíu Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Harry Kane sló ótrúlegt met í Þýskalandi Læti í göngunum eftir leik Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Ævintýrið heldur áfram hjá Frey og hans mönnum Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Glódís og liðsfélagar hennar unnu þægilegan sigur Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref JJ Gabriel mættur til Barcelona Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Sjá meira