Lífið

Óskar eftir sögum venjulegs fólks

Lene Stæhr, dönsk heimildamyndagerðakona, vinnur að þríleik í samstarfi við danska ríkissjónvarpið. Hún leitar að sögum hér á landi.
Lene Stæhr, dönsk heimildamyndagerðakona, vinnur að þríleik í samstarfi við danska ríkissjónvarpið. Hún leitar að sögum hér á landi.
Lene Stæhr, dönsk heimildarmyndagerðakona, vinnur að þríleik í samstarfi við danska ríkissjónvarpið sem fjallar um líf fólks í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Stæhr leitar nú að söguefni hér á Íslandi og henni þykir ekkert viðfangsefni of stórt eða lítið.

Stæhr óskar eftir sögum frá fólki sem glímir við vanda eða átök í lífi sínu og hefur hugrekki til að deila sögu sinni með öðrum. Myndirnar sem gerast á Grænlandi og í Færeyjum eru langt á veg komnar og segja frá samkynhneigðum manni á Grænlandi og súludansara er hraktist burt úr hinu strangkristna samfélagi í Færeyjum og leitast nú eftir því að byggja upp samband við fjölskyldu sína á ný.

Þess má geta að þríleikurinn er framleiddur af framleiðslufyrirtæki í eigu leikstjórans Nicholas Winding Refn sem leikstýrði meðal annars kvikmyndunum Drive, Bronson og Pusher.

Stæhr segist ekki vita við hverju hún megi búast af Íslendingum en vonar að einhverjir sýni verkefninu áhuga. Hún mun lesa allar þær sögur sem berast og í kjölfarið reyna að hitta þá sem sendu sögurnar. „Það er mikilvægt að hitta alla því ég þarf að sjá hvort fólk geti miðlað sögu sinni til áhorfenda á áhrifaríkan hátt. Ég vil þó taka fram að heimildarmyndin er unnin í samráði við viðmælendur. Þetta verður mannleg saga unnin af ást og alúð.“

Áætlað er að tökur hefjist í september og búas má ið að eftirvinnslan taki upp undir ár. Afraksturinn verður svo sýndur í Danmörku og öðrum Norrænum sjónvarpsstöðum sem og í Frakklandi. Hafi einhver góða sögu til að deila með Sthr getur sá hinn sami sent henni tölvupóst á netfangið lenestaehr@hotmail.com.

- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.