Hátt í fimmtíu lík fundust á þjóðvegi 14. maí 2012 05:30 Vígalegur mexíkóskur lögreglumaður á þjóðveginum þar sem 49 aflimuð lík fundust í gær. fréttablaðið/AP
Fjörutíu og níu aflimuð og afskræmd lík fundust í plastpokum á þjóðvegi sem tengir saman borgina Monterrey og bandarísku landamærin. Þetta er enn eitt áfallið í baráttu yfirvalda gegn sífellt versnandi stríði á milli mexíkóskra eiturlyfjagengja. Skipulögð glæpagengi í Mexíkó skilja oft eftir lík á fjölförnum stöðum til að senda andstæðingum sínum skilaboð. Einhver fórnarlambanna sem fundust á þjóðveginum í gær báru húðflúr Santa Muerte-samtakanna sem eru vinsæl á meðal eiturlyfjasala. Ekki er samt útilokað að fórnarlömbin hafi verið fólk sem ætlaði að flýja yfir landamærin til Bandaríkjanna. Að sögn lögreglunnar í sýslunni Nuevo Leon var borði skilinn eftir þar sem líkin fundust með skilaboðum frá eiturlyfjahringnum Zetas þar sem hann lýsti ábyrgð fyrir fjöldamorðunum á hendur sér. Erfitt var að bera kennsl á líkin vegna þess að búið var að skera af þeim höfuðin, hendurnar og fæturna. Barátta mexíkóskra eiturlyfjahringja hefur farið harðnandi að undanförnu. Þeir svífast einskis til að öðlast stjórn yfir svæðunum sem notuð eru til að smygla eiturlyfjum til Bandaríkjanna, auk þess sem þeir berjast um yfirráð á eiturlyfjamarkaðnum heima fyrir. Einnig beita þeir ítrekað fjárkúgunum og herja oft á þá sem reyna að komast ólöglega til Bandaríkjanna. Í september skildi Sinaloa-hringurinn eftir 35 lík við þjóðveg skammt frá borginni Veracruz og nokkrum dögum síðar fann lögreglan 32 lík til viðbótar skammt frá. Svo virtist sem sami eiturlyfjahringur hafi þar verið að verki. Í nóvember fundust 26 lík í Guadalajara, sem er svæði þar sem Zetaz- og Sinola-hringirnir hafa barist um yfirráð. Á síðasta ári fundust 193 lík í fjöldagröf í bænum San Fernando. Talið er að þetta hafi verið flóttamenn sem voru drepnir af Zetas-hringnum. 72 flóttamenn til viðbótar, margir frá Mið-Ameríku, fundust drepnir í San Fernando árið 2010. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent Fleiri fréttir Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Sjá meira