Meirihlutinn bendir á Sigrúnu og Gunnar 20. apríl 2012 07:15
Bæjarfulltrúinn Gunnar Birgisson og Sigrún Ágústa Bragadóttir, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK), bættu við setningu í tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins (FME) þar sem var fullyrt að lánveitingar sjóðsins til Kópavogsbæjar stæðust lög. Þetta fullyrða fjórir þeirra sex sem nú sæta ákæru fyrir að hafa blekkt FME og segja setninguna ekki hafa verið í upphaflegum drögum að tilkynningunni sem þeir sáu. Þetta kemur fram í greinargerðum sem allir ákærðu í málinu hafa skilað til Héraðsdóms Reykjaness, utan Sigrúnar Ágústu, sem ekki hyggst skila slíkri greinargerð. Sigrún og Gunnar sæta ákæru eins og áður segir, auk bæjarfulltrúanna Flosa Eiríkssonar og Ómars Stefánssonar, og tveggja fulltrúa starfsmanna bæjarins í stjórn þáverandi sjóðsins, Jóns Júlíussonar og Sigrúnar Guðmundsdóttur. Sexmenningunum er gefið að sök að hafa ávaxtað fé sjóðsins með ólögmætum hætti, með því að lána Kópavogsbæ 600 milljónir króna um og eftir hrun, og blekkja FME með áðurnefndri tilkynningu. Allir þeir fimm sem hafa skilað greinargerð neita sök í málinu og rökstyðja þá afstöðu sína á keimlíkan hátt. Fyrir það fyrsta bera tveir sakborninganna, Gunnar og Ómar, því við að fjárfesting sjóðsins í peningamarkaðsskuldabréfum til Kópavogsbæjar hafi hreinlega verið heimil, þvert á það sem fullyrt er í ákærunni. Þeir benda á að peningamarkaðslán geti talist verðbréf sem ekki séu skráð á skipulegum markaði og að heimilt sé að fjárfesta í slíkum bréfum upp að vissu marki. Þá segjast fimmmenningarnir ekkert hafa haft með form lánveitingarinnar að gera og að sá frágangur hafi allur verið á hendi framkvæmdastjórans Sigrúnar Ágústu. Að síðustu krefjast sakborningarnir allir sýknu á þeim grundvelli að málið sé fyrnt. Sök í málum sem þessum fyrnist á tveimur árum en fresturinn rofnar um leið og rannsókn hefst á því hvort viðkomandi hafi brotið af sér. Allir telja sakborningarnir að rannsóknin hafi í upphafi snúið að öðrum sakarefnum en þeim sem að endingu var ákært fyrir. Því hafi fresturinn ekki rofnað þá. Jafnvel þótt það verði ekki tekið gilt verði ekki fram hjá því litið að meira en tvö ár hafi liðið frá því að rannsókn hófst og þar til ákæra var gefin út í lok síðasta árs. Aðalmeðferð í málinu fer fram í næstu viku. stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Innlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira