Gengisdómur kostaði Arion 13,8 milljarða 16. mars 2012 05:45 Uppistaðan í fjármögnun Arion banka eru innstæður. Vilji er til þess að fjármagna bankann meira með öðrum hætti. Fréttablaðið/gva
Arion banki birti fyrstur allra áætlað tap sitt vegna gengislánadóms. Tapið byggir á einum af fjórum sviðsmyndum FME. Útlán bankans jukust mikið vegna kaupa á lánasafni þrotabús Kaupþings. Farinn að huga að lánshæfiseinkunn. Arion banki færði eignir sínar niður um 13,8 milljarða króna vegna kostnaðar við endurreikning gengislána í kjölfar dóms Hæstaréttar í febrúar síðastliðnum. Útreikningurinn byggir á sviðsmynd sem Fjármálaeftirlitið (FME) hefur teiknað upp vegna dómsins. Alls eru sviðsmyndir FME fjórar og Arion banki valdi þá sem hann taldi líklegasta. Sá fyrirvari er þó gerður á útreikningnum að hann gæti breyst umtalsvert, til hins betra eða verra fyrir bankann, ef túlkun á niðurstöðu Hæstaréttar tekur breytingum frá þeirri sviðsmynd sem valin var. Þetta kemur fram í ársreikningi Arion banka sem birtur var í gær. Bankinn er fyrstur stóru viðskiptabankanna þriggja að birta mat á kostnaði sínum vegna niðurstöðu Hæstaréttar í febrúar. Hagnaður Arion banka eftir skatta var 11,1 milljarður króna á síðasta ári og arðsemi eiginfjár 10,5%. Vaxtatekjur bankans jukust milli ára og voru 23,4 milljarðar króna. Þá jukust þóknanatekjur úr 6,9 milljörðum króna í 10,7 milljarða króna. Á kynningarfundi með fjölmiðlum í gær sagði Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion, að tæpur helmingur þeirra væri tilkominn vegna greiðslukortaþjónustu dótturfélagsins Valitor og um fjórðungur vegna eignastýringar bankans. Að mati Höskuldar er niðurstaðan viðunandi. Útlán Arion banka jukust úr 451,2 milljörðum króna í 561,6 milljarða króna á árinu 2011 og eignir hans jukust því umtalsvert á liðnu ári. Tvennt var þó ráðandi í þessari breytingu. Annars vegar greiddi Össur hf. upp öll sín lán hjá Arion, sem voru vel á þriðja tug milljarða króna, í mars 2011 með endurfjármögnun frá erlendum bönkum. Hins vegar tók Arion yfir íbúðalánasafn þrotabús Kaupþings, sem metið er á 120 milljarða króna, og hafði áður verið í sérstökum sjóði. Innstæður jukust og eru sem áður uppistaðan í fjármögnun bankans, eða 67% hennar. Helstu stjórnendur Arion greindu frá því á kynningarfundinum í gær að ein þeirra lykilspurninga sem bankinn stæði frammi fyrir í ár væri hvort, og þá hvenær, hann ætti að sækjast eftir lánshæfiseinkunn hjá alþjóðlegum matsfyrirtækjum. Slíkt yrði lykillinn að því að blanda fjármögnun hans betur þannig að hún hvíldi ekki jafn mikið á innlánum. Hvort það yrði gert færi þó eftir þróun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. Ísland er sem stendur með lægstu einkunn í fjárfestingaflokki. Sú einkunn þyrfti að hækka um eitt eða tvö hök.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Fleiri fréttir Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Sjá meira