Verðið hækkaði mest í verslunum Bónuss 13. mars 2012 07:00 Guðmundur Marteinsson
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 21 til 55 prósent frá því í apríl 2008 og mest hjá lágvöruverðsverslunum. Framkvæmdastjóri Bónuss dregur niðurstöðurnar í efa. Verð á mat- og drykkjarvörum hefur hækkað um 38 prósent á tímabilinu. Vörukarfa ASÍ, sem inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur auk hreinlætis- og snyrtivara, hefur hækkað um 21 til 55 prósent frá því í apríl 2008 þar til í byrjun mars 2012, að því er segir í fréttatilkynningu frá ASÍ. Verð vörukörfunnar hefur hækkað meira í lágvöruverðsverslunum en öðrum verslunum. Mesta hækkunin er hjá Bónus, 55 prósent, en minnsta hækkunin, 21 prósent, er hjá Hagkaup. Verð á mat- og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs hefur hækkað um 38 prósent frá því í apríl 2008 þar til nú í febrúar. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, kveðst draga niðurstöður verðkönnunarinnar í efa. „Vissulega hefur orðið gríðarleg hækkun á matvöru. Það finna allir neytendur. En að vörukarfan hafi hækkað um 55 prósent hjá Bónus en 21 prósent hjá Hagkaup stenst ekki. Ef þetta væri svona væri Hagkaup orðið ódýrara en Bónus og það er langur vegur þar frá. Ég dreg þessar niðurstöður í efa.“ Verðbreytingar voru skoðaðar hjá lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni og Nettó og í almennu matvöruverslununum Hagkaupi, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali auk klukkubúðanna 10-11 og 11-11. Jafnframt voru verðbreytingar skoðaðar hjá Samkaupum-Strax. Hækkunin á vörukörfunni hjá Nóatúni er 23 prósent eða örlítið meiri en hjá Hagkaup þar sem vörukarfan hefur hækkað minnst. Auk Bónuss hefur mesta hækkunin orðið á vörukörfunni hjá Samkaupum-Strax eða 53 prósent, hjá Nettó um 50 prósent, hjá 11/11 um 48 prósent og Krónunni um 46 prósent. Í fréttatilkynningu ASÍ er tekið fram að einungis séu birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki sé því um beinan verðsamanburð að ræða, það er að segja hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Bent er á að skoðuð hafi verið þau verð sem voru í gildi á verslununum á hverjum tíma og geti tilboð á einstaka vöruliðum þess vegna haft áhrif á niðurstöðurnar.ibs@frettabladid.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Sjá meira