Ekki fleiri leitað til Stígamóta í átján ár 9. mars 2012 08:00 Ársskýrsla kynnt Ársskýrsla Stígamóta kynnt í gær. Fréttablaðið/ vilhelm
Átján leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana í fyrra. Gerendur voru í þremur tilvikum fjórir eða fleiri. Ný mál voru 313 talsins og fleiri hafa ekki leitað til samtakanna síðan árið 1994. 50 manns eru í viðtölum þar vegna vændis og kláms. Átján leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana á síðasta ári og átta vegna lyfjanauðgana. Þetta kemur fram í ársskýrslu Stígamóta. Þrettán prósentum fleiri leituðu í fyrsta sinn til samtakanna í fyrra en árið þar áður. Leita þarf aftur til fyrstu ára Stígamóta til að finna hærri komutölur. Guðrún Jónsdóttir talskona bendir á að á fyrstu árunum hafi engin önnur úrræði verið komin til sögunnar auk þess sem uppsafnaður fjöldi hafi leitað þangað fyrstu árin. Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem leita til Stígamóta en hlutur karla eykst þó. 11,5 prósent þeirra sem komu í viðtal í fyrra voru karlar. Tæp 94 prósent þeirra sem höfðu beitt þessa einstaklinga ofbeldi voru karlar. Rúmlega helmingur einstaklinga sem kom í viðtal var á aldrinum 18 til 29 ára, en um 60 prósent þeirra sögðu ofbeldi gegn þeim hafa hafist á aldrinum fimm til sautján ára. Þar af hafði ofbeldi gagnvart 35 prósentum hafist þegar viðkomandi voru fimm til tíu ára. „Tölurnar sýna að við erum að hitta ungt fólk þar sem ofbeldið byrjaði snemma,“ segir Guðrún. Gerendur eru líka ungir og algengast var að þeir væru á aldrinum 18 til 29 ára. Fimmtungur þeirra er undir lögaldri. „Kynferðisbrotamenn byrja ferilinn ungir, sláandi ungir,“ segir Guðrún og bætir því við að yngri menn beiti grófara ofbeldi. Hópnauðganir hafa færst í aukana og segir Guðrún að það tengist gengjamyndun og skipulagðri glæpastarfsemi. Í fyrra var tilkynnt um 18 hópnauðganir. Í sex tilvikum voru ofbeldismennirnir tveir, í tveimur tilvikum þrír og í þremur tilvikum voru ofbeldismennirnir fjórir eða fleiri. Upplýsingar vantaði um fjölda gerenda í sjö tilfellum. Ríflega ellefu prósent kærðu mál sín til lögreglu. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Fleiri fréttir Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu Sjá meira