Varðstjóri berst gegn hindrunum á Dalvegi 9. mars 2012 08:15 Ef breytingin sem Kópavogsbær hefur áætlað gengur eftir munu lögreglumenn ekki lengur geta ekið út af lögreglustöðinni á Dalvegi og tekið vinstri beygju í átt að Smáratorgi því umferðareyja verður á milli akreina. Fréttablaðið/Vilhelm
Aðalvarðstjóri segir áformaðar breytingar á Dalvegi munu hindra lögregluna og ógna öryggi borgaranna. Bæjarstjórinn í Kópavogi segist undrandi og biður um að sjá gögn sem „sérfræðingar séu væntanlega búnir að vinna fyrir lögregluna“. Gylfi Sigurðsson aðalvarðstjóri segir áætlaða breytingu á skipulagi umferðar á Dalvegi í Kópavogi munu hindra starf lögreglunnar og stofna öryggi fólks í hættu. Gylfi mætti á síðasta fund umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs og lagði þar fram bókun. Í henni undirstrikar Gylfi að lögreglan verði að eiga greiða og óhefta leið frá starfsstöð sinni. Lögreglustöð og sýslumannsskrifstofa er á Dalvegi 18. Þangað er Pósturinn einnig nýfluttur með afgreiðslu. Ætlunin er að gera tvö hringtorg á Dalvegi, nokkuð ofan og neðan við lögreglustöðina. Jafnframt á að aðskilja akreinar götunnar með umferðareyju. „Ef við erum að fara í útkall í átt að Smáratorgi getum við ekki lengur tekið vinstri beygju niður Dalveginn heldur þurfum fyrst upp að hringtorginu og snúa þar við,“ útskýrir Gylfi. „Hver sekúnda skiptir máli og það getur verið lífsspursmál að bæta ekki þessum krók við leiðina. Þess utan er forgangsakstur hættulegur og ástæðulaust að lengja hann.“ Á þessu hnykkir Gylfi í áðurnefndri bókun. „Með því að loka með einhverjum hætti útakstri lögreglu er verið að stefna öryggi bæjarbúa í hættu,“ fullyrðir hann. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir innihald bréfs Gylfa koma bæjaryfirvöldum í opna skjöldu. „Það kemur okkur á óvart að fyrstu viðbrögð lögreglunnar skuli birtast í þessari bókun með svo afgerandi hætti. Það er greinilegt á þessu að umferðarsérfræðingum bæjarins ber ekki saman við umferðarsérfræðinga lögreglunnar,“ segir hann. Samgöngunefndin frestaði afgreiðslu umferðarskipulagsins á Dalvegi á fyrrnefndum fundi. Ármann segir að funda verði með hlutaðeigandi og óskað eftir þeim gögnum sem sérfræðingar séu væntanlega búnir að vinna fyrir lögregluna. Að sögn Ármanns voru markmiðin með breytingum á Dalvegi þríþætt. „Í fyrsta lagi að auka umferðaröryggi með því að draga úr hraða og fækka krossgatnamótum á Dalveginum. Í öðru lagi auka umferðarflæði á svæðinu og í þriðja lagi að draga úr hljóðmengun,“ segir bæjarstjórinn sem kveður málið verða skoðað með ítarlegri hætti þegar frekari upplýsingar frá lögreglu liggi fyrir. „Í neyðarakstri liggur sérfræðikunnátta lögreglunnar. Það er nú bara almenn skynsemi að við slíkan akstur þarf leiðin að vera óheft,“ svarar aðalvarðstjórinn. gar@frettabladid.is
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira