Drýgir tekjurnar á spúandi Drottningu 1. febrúar 2012 05:00 Eggert segir ekki nægilega mikið að gera til að hann hafi lifibrauð af snjómokstrinum, en hann hafi gaman af honum. „
Grafan var til hérna í nágrenninu en var ógangfær og allt fast í henni. Við fengum hana fyrir slikk en það fór mikill peningur og vinna í að taka hana í gegn," segir Eggert Sigurður Kristjánsson, 27 ára Hólmvíkingur, sem tók upp á því ásamt pabba sínum, að taka í gegn gamla gröfu og búa til snjómokstursvél. Vélin, sem er af gerðinni Fiat Allis, er frá upphafi áttunda áratugar síðustu aldar og komst aftur á götuna í desember síðastliðnum. „Við nefndum hana Drottninguna. Sumir vildu að hún fengi nafnið Kyoto því hún reykti svo mikið, en ég benti þeim á að það geri Margrét Danadrottning líka. Nafnið var því samþykkt." Eggert segir ekki nægilega mikið að gera í mokstrinum svo hafa megi af því lifibrauð. Það sé dagamunur á því hversu mikið sé að gera. Þeir feðgar eru sjálfstætt starfandi verktakar með alls kyns vélar, og hafa meðal annars unnið fyrir Hólmavíkurhrepp auk þess að sinna verkefnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Í frítíma sínum hefur Eggert meðal annars unnið á sumarbústaðajörðum þar sem hann lagar til landslagið með traktorsgröfu. Auk þess þykir honum gaman að gera við snjósleða og hefur verið duglegur í því, enda snjósleðasportið í miklu uppáhaldi. Eggert er félagi í snjósleðaklúbbnum Strandatröllin, en hann segist vera algjörlega sleðasjúkur og nota öll tækifæri til að fara á snjósleða. Faðir Eggerts, Kristján Guðmundsson, hefur lengi verið í vélabransanum og á fyrirtækið Strandfrakt ehf., auk þess sem hann vinnur hjá flutningafyrirtæki. Eggert hefur því verið alinn upp í vélabransanum og hefur mikinn áhuga á flestu sem tengist vélum. Hann er nýfluttur aftur heim frá Noregi þar sem hann vann á jarðýtu og gröfu. „Það mætti eiginlega segja að ég væri vélkynhneigður," segir Eggert. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira