Útlit fyrir stærstu loðnuvertíð í áratug 27. janúar 2012 05:00 Það styttist óðum í að loðnuvertíðin fari á fullt. fréttablaðið/óskar Mynd/Óskar.
Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyfilegur hámarksafli á loðnuvertíðinni verði 765 þúsund tonn, að meðtöldum þeim afla sem búið var að veiða þegar mælingar fóru fram. Um 590 þúsund tonn af loðnu munu falla til íslenskra útgerða. Útflutningsverðmætið er um 30 milljarðar króna, segir á heimasíðu LÍÚ. Í janúar hefur rannsóknaskipið Árni Friðriksson verið við rannsóknir og mælingar á stærð loðnustofnsins frá sunnanverðum Austfjörðum, norður um og allt að Norðvesturmiðum. Fyrstu dagana komu jafnframt 11 veiðiskip að því að kanna útbreiðslu loðnunnar út af Austfjörðum og Norðurlandi. Útreikningar á stærð veiðistofnsins sýna að alls mældust 1.065 þúsund tonn af kynþroska loðnu í fyrri mælingunni, en 1.020 þúsund tonn í þeirri síðari. Í ljósi gildandi aflareglu um að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar hefur Hafrannsóknastofnunin nú lagt til að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2011/2012 verði ákveðinn 765 þúsund tonn, eins og áður sagði. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir fréttirnar afar ánægjulegar enda verði loðnuvertíðin í ár sú stærsta í um áratug og gefi góðar vonir um framhaldið. Hann segir þetta ekki síður mikilvægt fyrir lífríkið í hafinu vegna fæðuöflunar annarra nytjastofna. - shá
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Sjá meira