Innlent

Oddný segir misskilning á ferð

Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon
Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir það misskilning að hún hafi hafnað því að funda um fyrirhugaðar breytingar á skólahaldi með foreldum í Hamraskóla.

Foreldrarnir eru margir hverjir óánægðir með að flytja skuli unglingastig Hamraskóla yfir í Foldaskóla næsta haust.

Fullyrt var í fjölmiðlum í fyrradag að Oddný hefði neitað boði frá foreldrunum um að ræða málið á fundi með þeim og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu, Kjartan Magnússon, lét í kjölfarið bóka á fundi ráðsins að slík vinnubrögð væru fáheyrð.

Oddný segir að foreldrarnir hafi kynnt opinn fund um málið með þátttöku fulltrúa borgarinnar án nokkurs samráðs við hana eða aðra frá borginni um tímasetningu eða annað. Slíkur opinn fundur hafi síðast verið haldinn í Hamraskóla í desember.

„Í kjölfarið bauð ég þeim að koma til fundar við mig og ræða það sem þeim fannst ekki hafa komist nógu skýrt til skila í desember,“ segir Oddný.

Það sé fráleitt að hún vilji ekki hafa samráð við foreldra eins og Kjartan heldur fram í bókun sinni, enda hafi hún kappkostað að eiga sem mest samskipti við þá sem eiga hlut að máli. Skoðanir um málið séu afar skiptar í hverfinu og hún vilji gera það sem hún geti til að leysa málið í sátt við sem flesta. Sífellt sé fundað um þessi mál.- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×