Innlent

Ræða uppsögn kjarasamninga

Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson
Skiptar skoðanir eru um það innan verkalýðshreyfingarinnar hvort segja skuli upp gildandi kjarasamningum. Endurskoðunarnefnd Alþýðusambandsins þarf að skila ákvörðun í dag um það hvort sambandið hyggst virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninganna.

Hafa aðildarfélög ASÍ fundað síðustu daga vegna þessa. Þannig hafa trúnaðarráð VR og Einingar-Iðju auk stjórnar VM ályktað að ekki væri ástæða til uppsagnar. Hins vegar var samþykkt á fundi samninganefndar AFLs starfsgreinafélags í fyrrakvöld ályktun þar sem hvatt var til uppsagnar á gildandi kjarasamningum. - mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×