Leiða vatn til átöppunar í Kópavogi 19. janúar 2012 09:00 Stytta á leiðina frá Gvendarbrunnum í átöppunarverksmiðju í Ögurhvarfi með tengingu einkavatnslagnar við aðveituæð Orkuveitunnar.
Fyrirtækið Catco vatn ehf. hefur fengið heimild bæjaryfirvalda í Kópavogi til að leggja vatnslögn frá aðveituæð Orkuveitunnar í Reykjavík að iðnaðarhúsnæði í Kópavogi. Fram kemur í erindi Catco vatns að það sé afsprengi fyrirtækjanna Þórbrunns og síðar Iceland Spring sem enn er nafn vörumerkisins. Mest af vatninu sé selt úr landi. „Til að mega nota og viðhalda „Spring Water" lindarvatns-skilgreiningunni þarf fyrirtækið að nýta vatn úr lögn sem einungis fyrirtækið hefur aðgang að og því er ekki möguleiki að tengjast dreifikerfi vatns í Kópavogi né öðrum almenningsveitukerfum," segir í erindi Catco vatns. Catco hyggst tengjast lögn Orkuveitunnar á svæði sem kallast Skyggnir og stytta með því leið vatnsins frá Gvendarbrunnum að verksmiðjuvegg um helming. Catco segir Orkuveituna telja að slík lögn „ætti að vera tiltölulega lítið verk þar sem rörið yrði grafið niður í óbyggðamóa austan við Breiðholtsbraut og borað undir farveg Elliðaárinnar og ætti því ekki að valda raski á umhverfinu." Í fundargerð bæjarráðs segir að Catco sé að hluta í eigu erlendra aðila en ekki liggi fyrir nákvæmar upplýsingar um eignarhald eða fjárhagsstöðu fyrirtækisins. - gar
Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Erlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Sjá meira